<$BlogRSDURL$>

Veikindi, vansköpun, eyðilegging og ýmislegt annað skemmtilegt.

Þar sem yfirvöld viðurkenndu ekki slysið strax þá gerðu þau ekkert til að vernda fólk í borginni fyrir geislavirkum áhrifum slyssins. Mikið magn sjúkdóma hefur fundist í fullorðnum og börnum eftir slysið og krabbameinssjúklingum hefur fjölgað gífurlega. Fjöldi tilfella kabbameins í skjaldkirtli hefur t.a.m. 100 faldast í Hvíta-Rússlandi. Hvítblæði og aðrir sjúkdómar af völdum geislunar hafa einnig margfaldast. Til dæmis leituðu meira en 800.000 manns til læknis sumarið 1987 vegna vandamála sem rekja má til Chernobyl-slyssins. Talað hefur verið um að konur hafi verið hræddar við að eignast afskræmd börn og þess vegna farið í fóstureyðingu. Í dag er talið að meira en fjórar milljónir manna í Úkraínu, Hvíta- Rússlandi og Vestur-Rússlandi búi enn á menguðu landsvæði. Samkvæmt vitnisburðum lækna í þeim héruðum sem urðu fyrir mikilli geislun hefur orðið aukning í þrálátum sjúkdómum í nefi og hálsi, maga og þörmum, lifur, hrygg og fleiri líffærum, jafnvel blóðinu, sérstaklega meðal barna. Samkvæmt opinberum tölum, sem líklega eru vanmetnar, er heilsa um helmings barna í héruðunum Gomel og Mogilev algjörlega ófullnægjandi. Læknarnir á þessum svæðum eru samt sem áður tregir til að viðurkenna að þessir sjúkdómar séu tengdir Chernobyl-slysinu en það gera þeir líklega eftir skipunum frá heilbrigðisyfirvöldum. Fullorðnir á þessum svæðum kvarta mest um höfuðverk og svimaköst. Samkvæmt tölum sem sérfræðingar sem rannsökuðu áhrif geislunar á vinnuafköst voru 20 af hverjum 100 fullorðnum með óvenju lágt þol. Slíkt þekktist ekki fyrir Chernobyl slysið.

Slysið hefur einnig haft gríðarleg áhrif á dýr á svæðinu og hafa ýmsir fæðingagallar komið í ljós fyrstu árin eftir slysið. Algengustu fæðingargallarnir eru vöntun á einum eða fleiri útlimum, vansköpun á höfuðkúpu eða hrygg, ófullnægjandi augnfjöldi, ofvöxtur augnloka, skortur á hári, sýnileg innri líffæri og ekkert endaþarmsop. Árið 1989 var fjöldi kálfa sem fæddust með tvö höfuð kominn upp í 90. Einnig eru þekkt tilfelli þar sem kálfar hafa fæðst með allt að átta fætur.